Leikskólinn Borg varð til við sameiningu leikskólanna Arnarborgar og Fálkaborgar 1. Júlí 2011. Leikskólinn er starfræktur á tveimur starfstöðvum sem bera gömlu heiti leikskólanna, Arnarborg sem stendur við Maríubakka 1 og Fálkaborg sem stendur við Fálkabakka 9. Þrjár deildir eru á hvorri starfstöð um sig. Aldur barnanna er frá eins til sex ára og gert er ráð fyrir 110 börnum.
Leikurinn er námsleið barna, lífstjáning þeirra og gleðigjafi. Leikurinn er því rauði þráðurinn í öllu starfi leikskólans. Í Borg leggjum við höfuðáherslu á að börnin öðlist félagsfærni og sjálfseflingu.
Einkunnarorð leikskólans Borgar eru:
VIRÐING - ÁBYRGÐ - UMHYGGJA