Leikskólinn Borg

  • Forsíða
  • Leikskólinn
    • Leikskólinn Borg
    • Arnarborg
      • Starfsfólk
      • Lóuholt
      • Spóaholt
      • Krummaholt
      • Eldhús Arnarborgar
    • Fálkaborg
      • Starfsfólk
      • Arnarholt
      • Fálkaholt
      • Ugluholt
      • Eldhús Fálkaborgar
    • Fréttasafn
    • Hagnýtar upplýsingar
    • Stefna og starfsáætlun
    • Leikskólastarf
    • Viðburðadagatal
    • Söngbók
      • Vorlög
      • Sumarlög
      • Haustlög
      • Vetrarlög
      • Jólalög
      • Vinalög
    • Starfsfólk
  • Foreldrar
    • Foreldrafélög Borgar

Leikskólinn Borg

Maríubakki 1, 109 Reykjavík
Fálkabakki 9 Reykjavík
411-3350
borg@rvkskolar.is

  • Forsíða
  • Leikskólinn
    • Leikskólinn Borg
    • Arnarborg
      • Starfsfólk
      • Lóuholt
      • Spóaholt
      • Krummaholt
      • Eldhús Arnarborgar
    • Fálkaborg
      • Starfsfólk
      • Arnarholt
      • Fálkaholt
      • Ugluholt
      • Eldhús Fálkaborgar
    • Fréttasafn
    • Hagnýtar upplýsingar
    • Stefna og starfsáætlun
    • Leikskólastarf
    • Viðburðadagatal
    • Söngbók
      • Vorlög
      • Sumarlög
      • Haustlög
      • Vetrarlög
      • Jólalög
      • Vinalög
    • Starfsfólk
  • Foreldrar
    • Foreldrafélög Borgar

Hagnýtar upplýsingar

Nánar

Article Index

  • Hagnýtar upplýsingar
  • Lok leikskólagöngu
  • Sumarleyfi
  • Afmælisboð
  • Slys á börnum
  • Börn í fylgd með fullorðnum
  • Leikföng að heiman
  • Vistunartími
  • Lyfjagjöf á leikskólatíma
  • Frí og veikindi barna
  • Fatakassi barnanna og aukaföt
  • Afmæli
  • Allar síður

Hér má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir foreldra/forráðamenn.


Lok leikskólagöngu í Borg

Þegar börn hætta í leikskólanum gilda sömu reglur og með afmæli, þ.e.a.s þau  koma ekki með neitt matarkyns með sér í leikskólann til þess að bjóða upp á. Hinsvegar ef foreldrar vilja þá geta þeir gefið leikskólanum eitthvað.


Sumarleyfi

Foreldrum leikskólabarna ber að taka sumarfrí í fjórar vikur samfleytt fyrir börn sín og eru leikskólagjöld því greidd í 11 mánuði á ári. Júlímánuður er gjaldfrjáls og skiptir þá engu máli hvort frí sé tekið í júní eða ágúst. Sumarið 2022 verður sumarlokun í Borg frá 6.7.'22 - 5.8.'22 (opnað aftur fimmtudaginn 6.8.'22).


Afmælisboð

Almennt hefur leikskólinn ekki verið milligönguaðili þegar kemur að leikskólaafmælum. Við höfum leyft að setja boðskort í hólf barna ef allri deild barnsins er boðið. Að öðrum kosti bendum við foreldrum á að hafa samband við deildarstjóra.


Slys á börnum

Ef barn slasast í leikskólanum er haft samband við foreldra og í samráði við þá er metið hvort leita þurfi læknis. Mikilvægt er að hægt sé að ná sambandi við foreldra símleiðis. Ef leita þarf læknisaðstoðar fer foreldri með barnið á slysadeild eða á heilsugæslustöð. Leikskólasvið greiðir fyrir fyrstu læknisaðstoð. Form á greiðslu er með þeim hætti að foreldri greiðir fyrir heimsóknina, tekur kvittun sem leikskólastjóri fær ásamt upplýsingum um reikning sem greiðslan verður lög inná. Starfsmenn skrá slys barna á þar til gerð eyðublöð sem eru geymd í möppu barnsins en foreldrar fá afrit af.


Börn í fylgd með fullorðnum í og úr leikskóla.

Við í Borg styðjum okkur við reglur sem Rauði Kross Íslands viðhefur varðandi aldur þeirra sem gæta yngri barna. Rauði Krossinn miðar við 12 ára aldur og eldri í þessu tilfelli og viljum við því árétta að börn komi í fylgd 12 ára og eldri í leikskólann og eins að þau séu sótt af einhverjum sem er 12 ára eða eldri.

Mikilvægt er að foreldrar láti vita ef aðrir en foreldrar eða þeir sem eru skráðir með leyfi til að sækja barnið, komi til með að sækja börnin. Ef ekki er látið vita hringir starfsfólk í forráðamenn og athugar hvort senda megi barnið heim með þeim sem kominn er að sækja það. Auðvelt er að senda skilaboð í gegnum Völu-appið eða senda póst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og láta vita.


Leikföng að heiman

Það er ekki æskilegt að börnin komi með leikföng að heima í leikskólann. Stundum eru aðstæður þannig að barn upplifir öryggi með ákveðnu dóti. Komi það í leikskólann ábyrgist leikskólinn ekki dótið. Yfirleitt er nóg að barnið sé í litla stund með dótið og svo geymt í hólfi barnsins þar til það fer heim.


Vistunartími

Leikskólinn opnar kl.7.30 á morgnanna og lokar kl. 16:30. Innan þess tíma velja foreldrar vistunartíma fyrir barn sitt.  Áður en leikskólaganga barna hefst gera foreldrar og leikskóli með sér dvalarsamning, þar sem fram kemur m.a. hvaða vistun foreldrar velja fyrir barn sitt. Mikilvægt er að virða vistunartíma barnanna því starfsfólk er ráðið í hús í samræmi við fjölda barna hverju sinni. Hægt er að óska eftir breytingu á vistunartíma og er það gert í gegnum Rafræna Reykjavík / Völu / eða með því að senda póst á leikskólastjóra This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 

Foreldrar geta þó komið með börn sín seinna eða sótt þau fyrr en vistunartíminn segir til um því skólaskylda á ekki við um leikskólann. Börnin geta líka haft gott af því að vera ekki alltaf fulla vistun og vera með foreldrum sínum og fjölskyldu en þá er samt gott að kynna sér starfið í á deildinni og athuga hvort barnið sé nokkuð að missa af einhverju skemmtilegu. Eins finnst okkur gott að vita þegar börnin koma seint eða eru í fríi.


Lyfjagjöf á leikskólatíma

Ef barn þarf einhverra hluta vegna að taka lyf er ætlast til þess að það sé gert heima, undanskilin eru þó bráðalyf eins og t.d. asmalyf/lyf vegna bráðaofnæmis. Foreldrar eru hvattir til að fá ávísað lyfi sem taka má tvisvar á sólahring þannig að hægt sé að gefa barni það heima áður en barnið kemur í leikskólann og eftir að leikskóladegi líkur.


Frí og veikindi barna

Vinsamlegast tilkynnið veikindi eða frí barns í leikskólann.

Leikskólinn er fyrir heilbrigð börn, ef börn eru veik þá eru þau heima. Við biðjum foreldra að virða heilsu barna sinna og halda þeim heima ef þau eru óhress og ekki sjálfum sér lík.

Ef börn veikjast í leikskólanum er tafarlaust haft samband við foreldra og þeir beðnir um að sækja þau.


Fatakassi barnanna og aukaföt

Í Borg á hvert barn sinn kassa í fataklefanum undir aukaföt. Kassarnir eru á hillunum fyrir ofan hólf barnanna og framan á þeim eru listar yfir það sem í þeim á að vera. Foreldrar fylgjast svo með hvað tekið er úr kössunum og bæta aukafötum í kassann þegar þess þarf.  Útifötin eiga að hanga á snögum í hólfum barnanna og er mikilvægt að börnin séu alltaf með fatnað eftir veðri hverju sinni. Foreldrar taka svo útifatnað með heim á föstudögum ásamt skóm, stígvélum og því sem er í hólfum barnanna (húfur, vettlingar, peysur o.fl.). Inniskó er hægt að geyma í hólfum eða upp á kössunum ef þess er óskað.

Hafa skal í huga að unnið er með ýmis efni eins og t.d. málningu sem gætu farið í fatnað barnanna og því ættu þau að vera klædd samkvæmt því. Þá skal ítrekuð nauðsyn þess að merkja allan fatnað vel og vandlega til að koma í veg fyrir að hann glatist eða ruglist saman við fatnað annarra barna.


Afmæli

Þegar barn á afmæli er dagurinn haldinn hátíðlegur. Barnið kemur ekki með neitt að heiman þennan dag en dagurinn er gerður eftirminnilegur og barnið fær að vera "aðalnúmerið" allan daginn :)

 

Leikskólinn Borg

Maríubakki 1, 109 Reykjavík
Fálkabakki 9 Reykjavík
411-3350
borg@rvkskolar.is
Sendu okkur póst
Innskráning